Um okkur

Hulda ráðgjöf hjálpar fyrirtækjum að sjá þjónustuna með augum viðskiptavina sinna. Með hulduheimsóknum og markvissri ráðgjöf fá stjórnendur heiðarlega og skýra mynd af því sem vel er gert og hvar tækifæri eru til úrbóta.

Reynsla og traust

Starfsemin byggir á áratuga reynslu af þjónustumati og hulduheimsóknum fyrir fyrirtæki í fjölbreyttum atvinnugreinum. Gott Ráð ehf. hóf rekstur árið 2000. Árið 2023 hófst samstarf við fyrirtæki í sambærilegum geira og Hulda ráðgjöf ehf. var síðan stofnuð árið 2024.

Markmið okkar

Markmið Huldu ráðgjafar er að veita framúrskarandi og persónulega þjónustu sem skilar raunverulegu virði. Við vinnum náið með hverju fyrirtæki, skilgreinum skýr markmið og sníðum verkefnið að starfseminni.

Niðurstöðurnar veita stjórnendum hagnýta innsýn sem styður við betri ákvarðanir, markvissa þjálfun starfsfólks og stöðugar umbætur í þjónustu.

Við leggjum áherslu á:

  • persónulega ráðgjöf og þjónustu
  • fagleg og vönduð vinnubrögð
  • skýrar og hagnýtar niðurstöður
  • einfaldleika í öllum samskiptum
  • hagstætt verð